Ársfundur EFÍA 2019

Ársfundur EFÍA 2019

Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður haldinn þriðjudaginn 28. maí kl. 11:00 í Hlíðarsmára 8 í Kópavogi.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með umræðu og tillögurétti. Fundargögn má nálgast á vefsíðu sjóðsins.

Vakin er sérstök athygli á stjórnarkjöri sem fram fer nú í fyrsta sinn og sjóðfélagar hvattir til að nýta sér atkvæðisrétt sinn. Rafrænt stjórnarkjör hefst í kjölfar ársfundar og verður opið í 7 daga.

Framboðsfrestur rennur út 7. maí kl. 17:00, áhugasamir sjóðfélagar geta nálgast upplýsingar um framboð og framboðsgögn á vefsíðu sjóðsins sjá hér.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Ársreikningur kynntur
  3. Tryggingafræðileg úttekt
  4. Fjárfestingarstefna
  5. Stjórnarkjör
  6. Skipun stjórnarmanna sem ekki eru kjörnir á ársfundi og laun stjórnarmanna
  7. Val endurskoðanda
  8. Önnur mál

Fundargögn:

 

Ársreikningur 2018

Skýrsla tryggingastærðfræðings um tryggingafræðilega stöðu

 

Meginniðurstöður ársreiknings 
(í þúsundum króna)

Efnahagsreikningur 31.12.2018

Eignir
Eignahlutir í félögum og sjóðum   13.982.077
Skuldabréf     20.684.252
Ýmsar eignir   13.168
Fjárfestingar alls  34.679.497
   
 Kröfur  205.719
 Handbært fé  2.519.500
 Eignir samtals  37.404.716
   
 Skuldir  29.829
 Hrein eign til greiðslu lífeyris  37.374.887

 

Yfirlit um breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris fyrir árið 2018

Iðgjöld  2.123.865
Lífeyrir  934.034
Hreinar fjárfestingatekjur  1.804.392
Rekstrarkostnaður  50.824
 Hækkun á hreinni eing á árinu  2.943.399
 Hrein eign frá fyrra ári  34.431.488
 Hrein eign til greiðslu lifeyris  37.374.887

 

Lífeyrisskuldbindingar skv. niðurstöðu tryggingafræðings 31.12.2018

Eignir umfram áfallnar skuldbindingar 972.907 
   í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum  2,90%
 Eingir umfram heildarskuldbindingar  1.112.919
   í hlutfalli af heildarskuldbindingum  1,80%

 Kennitölur

Eignir í íslenskum krónum 81,40% 
Eignir í erlendri mynt  18,60%
Meðalfjöldi greiðandi sjóðfélaga  816
Fjöldi sjóðfélaga í árslok  1102
Fjöldi lífeyrisþega  211

 Hrein raunávöxtun

Hrein ávöxtun 2018  1,70%
Meðaltal hreinnar raunávöxtunar  
Síðustu 5 ár*  4,37%
Síðustu 10 ár*  4,11%

*Ávöxtunartölur hafa ekki verið endurreiknaðar vegna áranna 2004 -2011 með ttt. mismunar á markaðsvirði verðbréfa og virði þeirra mv. kaupkröfu.