29. maí 2019
Vaxtabreyting á sjóðfélagalánum EFÍA
Stjórn EFÍA hefur ákveðið að lækka vexti á óverðtryggðum lánum sjóðsins sem bera fasta vexti til 3 ára úr 6,5% í 6,25%. Lækkunin tekur gildi 1. júní nk. og gildir um ný útlán sjóðsins, þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til þriggja ára fastvaxtatímabili lýkur.
Vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum annars vegar og föstum vöxtum til fimm ára hins vegar eru óbreyttir í 2,5% og 3,75%.
Vakin er athygli á að sjóðfélagalán EFÍA eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar.