Úrræði vegna greiðsluerfiðleika
Sjóðfélögum EFÍA sem lenda í greiðsluerfiðleikum standa ýmis úrræði til boða, nú sem áður.
Sjóðurinn kemur sérstaklega til móts við þá sem sjá fram á tímabundna greiðsluerfiðleika vegna Covid -19 með hléi á afborgunum lána í allt að þrjá mánuði. Umsóknarferlið er rafrænt og hraðvirkt og kostnaðurinn sem því fylgir er eingöngu útlagður kostnaður s.s þinglýsingargjald og veðbókarvottorð.
Úrræðið virkar þannig að afborganir íbúðalána verða frystar í þrjá mánuði, þ.e. ekki þarf að greiða af láninu næstu þrjá mánuði eftir undirritun. Afborganir og vextir íbúðalána leggjast á meðan á höfuðstól lánsins til hækkunar á því. Þessi hækkun á höfuðstól leiðir til þess að afborganir lánsins eftir að úrræðinu lýkur hækka.
Óski sjóðfélagi eftir 3 mánaða greiðsluhléi eru tvær leiðir til að koma þeim óskum á framfæri:
- Senda póst á greidsluhle@arionbanki.is
- Taka fram nafn og kennitölu og að um sé að ræða lán hjá EFÍA. - Senda inn rafræna beiðni sem nálgast má hér
- Í reitinn “skilaboð” skal taka fram að um sé að ræða EFÍA lán.
Ef sjóðfélagi þarf á frekari sveigjanleika að halda eru slík mál skoðuð með hverjum og einum. Ýmis úrræði eru í boði og kostnaður breytilegur eftir því hvaða leið er valin. Mikilvægt er að sjóðfélagi kynni sér vel hvað er í boði og velji þá leið sem hentar aðstæðum best.
Í ljósi aðstæðna hvetjum við sjóðfélaga til þess að nýta rafrænar leiðir til þess að hafa samband við okkur og bendum við á rafrænt spjall á heimasíðu eða netfangið efia@arionbanki.is þar sem óska má eftir viðtali til að fara yfir málin.