Auglýst eftir framboðum - Fulltrúar sjóðfélaga í stjórn EFÍA

Auglýst eftir framboðum - Fulltrúar sjóðfélaga í stjórn EFÍA

Auglýst er eftir framboðum til stjórnarsetu í EFÍA kjörtímabilið 2020-2022.

Í samræmi við samþykktir sjóðsins er kosið rafrænt til stjórnar, kosning hefst á ársfundi sjóðsins sem stefnt er að í júní. Vegna aðstæðna hefur ekki verið unnt að gefa út dagsetningu ársfundar en það verður gert eins fljótt og mögulegt er.

Samkvæmt greinum 4.1 og 4.1 a í samþykktum sjóðsins skulu sjóðfélagar nú kjósa einn aðalmann og tvo varamenn til stjórnarsetu í tvö ár. Þeir sem gefa kost á sér þurfa að uppfylla eftirfarandi:

  • Vera sjóðfélagar í EFÍA.
  • Vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv. 31. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og fullnægja að öðru leyti þeim kröfum sem gerðar eru um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. framangreindum lögum, reglum FME og samþykktum sjóðsins.
  • Vera tilbúnir til að gangast undir hæfismat FME.
  • Skila inn framboðsgögnum innan tilskilins tímafrests.
  • Vakin er athygli á því að vegna samsetningar stjórnar geta einungis konur boðið sig fram í sæti aðalmanns í stjórnarkjöri 2020.*

Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn framboð og fylgigögn sem listuð eru upp hér að neðan á netfangið stjornarframbodefia@arionbanki.is

Frestur til að skila inn framboði er 18. maí kl. 17:00.

Í tilkynningu um framboð eða fylgigögnum skal frambjóðandi a.m.k. tiltaka:

  • Nafn, kennitölu og heimilisfang.
  • Upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun og reynslu.
  • Yfirlýsingu um að viðkomandi hafi kynnt sér og uppfylli hæfisskilyrði 31. gr. laga nr. 129/1997.
  • Aðrar þær upplýsingar sem frambjóðandi telur að geti nýst við að meta hæfi og hæfni hans til að gegna stjórnarstörfum

Þá skal jafnframt fylgja umsókn upplýsingar um hvort frambjóðandi gefi kost á sér í aðalstjórn eða varastjórn (eða bæði).

Frekari upplýsingar veita framkvæmdastjóri sjóðsins og stjórnarformaður, snaedis.flosadottir@arionbanki.is og sturla@efia.is.
 

* Í samræmi við 29. gr. laga 129/1997 skal tryggt að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40% meðal aðalmanna og varamanna.


31. gr. í lögum 129-1997 og 6. gr reglna 180-2013

Grein: Hverjir eiga erindi í stjórn lífeyrissjóðs?

Leslisti vegna hæfismats FME