Opnunartími móttöku og fyrirframbókaðir fundir
Nú er allt að komast í samt lag á ný eftir breytingar undanfarið og vill starfsfólk koma á framfæri þakklæti til sjóðfélaga vegna þess hve vel þeir hafa tekið breytingunum. Nú hefur verið opnað fyrir móttöku að nýju með áherslu á fyrirframbókaða fundi.
Sjóðfélagar eru hvattir til að skrá erindi sín hér bæði vegna lánamála og lífeyrismála. Í kjölfarið verður haft samband við sjóðfélaga og mál hans leyst í gegnum síma eða rafrænar leiðir eftir atvikum. Ef tilefni er til þá er bókaður fundur:
- Vegna lánamála hjá fjármálaráðgjafa í útibúi Arion banka, Borgartúni 18 milli kl. 11-16 virka daga.
- Vegna lífeyrismála hjá lífeyrisráðgjafa í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, milli kl. 9-16 virka daga.
Það er von okkar að með þessum hætti megi spara bæði tíma og fyrirhöfn, til hagsbóta fyrir sjóðfélaga.