Fjármálaráðuneytið staðfestir breytingar á samþykktum EFÍA
Fjármálaráðuneytið hefur staðfest breytingar á samþykktum EFÍA sem samþykktar voru í allsherjar atkvæðagreiðslu sjóðsins sem lauk 19. júní sl. Nýjasta útgáfa samþykkta EFÍA er nú aðgengileg á vefsvæði sjóðsins.
Með breytingum á samþykktum nú er opnað á þann möguleika fyrir sjóðfélaga EFÍA að greiða áfram til sjóðsins á meðan þeir fá greiðslur frá Vinnumálastofnun eða Fæðingarorlofssjóði. Þá er jafnframt opnað á það að sjóðfélagar EFÍA geti greitt áfram til sjóðsins, tímabundið, af launum frá vinnuveitanda utan FÍA.