Vaxtalækkun á sjóðfélagalánum EFÍA

Vaxtalækkun á sjóðfélagalánum EFÍA

Stjórn EFÍA hefur ákveðið að lækka vexti á verðtryggðum lánum sjóðsins sem bera breytilega vexti.

Verðtryggðir breytilegir vextir sjóðfélagalána lækka úr 1,99% í 1,79% og tekur lækkunin gildi 1. janúar 2021 en tilkynna þarf um lækkun breytilegra vaxta með eins mánaðar fyrirvara. Lækkunin gildir um ný og þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir breytist ársfjórðungslega.

Vakin er athygli á að sjóðfélagalán EFÍA eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar.