Sjóðfélagafundur EFÍA föstudaginn 12. febrúar kl. 12:00 - rafrænn fundur

Sjóðfélagafundur EFÍA föstudaginn 12. febrúar kl. 12:00 - rafrænn fundur

Föstudaginn 12. febrúar kl. 12:00 fer fram sjóðfélagafundur EFÍA en þar er um að ræða árlegan upplýsingafund fyrir sjóðfélaga þar sem farið er yfir ávöxtun og þróun síðasta árs.

Á fundinum verður farið yfir nýliðið ár, þróun markaða og ávöxtun sjóðsins árið 2020 ásamt umfjöllun um það hvernig árið 2021 fer af stað. Þá verður að sjálfsögðu opið fyrir spurningar og umræður.

Að þessu sinni verður sjóðfélagafundurinn rafrænn og biðjum við sjóðfélaga sem hyggjast mæta á fundinn að skrá sig hér. Að morgni fundardags verður sendur út hlekkur á fundinn á öll er skráðu sig.