Auglýst eftir framboðum - Fulltrúar sjóðfélaga í stjórn EFÍA
Auglýst er eftir framboðum til stjórnarsetu í EFÍA kjörtímabilið 2021-2023.
Í samræmi við samþykktir sjóðsins er kosið rafrænt til stjórnar, kosning hefst á ársfundi sjóðsins sem stefnt er að í lok maí/byrjun júní og stendur í viku. Ástæða þess að ársfundur hefur ekki verið tímasettur er sú að vilji er til að freista þess að ná fundartíma þar sem unnt er að taka á móti öllum þeim sjóðfélögum sem hafa hug á að mæta. Vegna aðstæðna hefur ekki verið unnt að gefa út þá dagsetningu en það verður gert eins fljótt og mögulegt er.
Samkvæmt greinum 4.1 og 4.1 a í samþykktum sjóðsins skulu sjóðfélagar nú kjósa tvo aðalmenn og einn varamann til stjórnarsetu í tvö ár. Þeir sem gefa kost á sér þurfa að uppfylla eftirfarandi:
- Vera sjóðfélagar í EFÍA.
- Vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv. 31. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og fullnægja að öðru leyti þeim kröfum sem gerðar eru um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. framangreindum lögum, reglum FME og samþykktum sjóðsins.
- Vera tilbúnir til að gangast undir hæfismat FME.
- Skila inn framboðsgögnum innan tilskilins tímafrests.
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn framboð og fylgigögn sem listuð eru upp hér að neðan á netfangið stjornarframbodefia@arionbanki.is.
Frestur til að skila inn framboði er 4. maí kl. 22:00.
Í tilkynningu um framboð eða fylgigögnum skal frambjóðandi a.m.k. tiltaka:
- Nafn, kennitölu og heimilisfang.
- Upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun og reynslu.
- Yfirlýsingu um að viðkomandi hafi kynnt sér og uppfylli hæfisskilyrði 31. gr. laga nr. 129/1997.
- Aðrar þær upplýsingar sem frambjóðandi telur að geti nýst við að meta hæfi og hæfni hans til að gegna stjórnarstörfum.
- Kynningarbréf fyrir sjóðfélaga með helstu upplýsingum um frambjóðandann sem birt verður á kosningavef á heimasíðu sjóðsins ásamt mynd.
Þá skal jafnframt fylgja umsókn upplýsingar um hvort frambjóðandi gefi kost á sér í aðalstjórn eða varastjórn (eða bæði).
Í samræmi við 29. gr. laga 129/1997 skal tryggt að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40% meðal aðalmanna og varamanna stjórnarinnar í heild.
Grein: Hverjir eiga erindi í stjórn lífeyrissjóðs?
31. gr. í lögum 129-1997 og 6. gr reglna 180-2013