Erlendar fjárfestingar EFÍA - áhættudreifing aukin

Erlendar fjárfestingar EFÍA - áhættudreifing aukin

Undanfarin ár hefur Eftirlaunasjóður FÍA (EFÍA) aukið áhættudreifingu innan erlenda hluta eignasafnsins og samhliða nýtt sér nýja ávöxtunarmöguleika.

Frá afnámi fjármagnshafta fyrri hluta árs 2017 hefur erlendi hluti eignasafnsins stækkað verulega og var megináherslan í upphafi lögð á erlend hlutabréf. Síðustu ár hefur aukinn þungi verið settur á erlend skuldabréf og í fjárfestingarstefnu ársins 2020 var tekin sú stefnumarkandi ákvörðun að hefja með markvissum hætti uppbyggingu á safni erlendra sérhæfðra fjárfestinga. Þar með var ákveðið að bæta enn frekar í sókn EFÍA á erlenda markaði.

Hér má sjá grein sem birt var í fréttabréfi FÍA þar sem ítarlega er gerð grein fyrir vegferð EFÍA út fyrir landsteinana:

Sérhæfðar erlendar fjárfestingar EFÍA