Vaxtabreyting á óverðtryggðum sjóðfélagalánum EFÍA

Vaxtabreyting á óverðtryggðum sjóðfélagalánum EFÍA

Stjórn EFÍA hefur ákveðið að hækka vexti á óverðtryggðum lánum sjóðsins sem bera fasta vexti til 3 ára úr 4,2% í 4,5%. Hækkunin tekur gildi 29. nóvember nk. og gildir um ný útlán sjóðsins, þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til þriggja ára fastvaxtatímabili lýkur.

Vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum annars vegar og föstum vöxtum til fimm ára hins vegar eru óbreyttir í 1,79% og 3,75%.