Áherslur fjárfestingarstefnu EFÍA 2022
Stjórn Eftirlaunasjóðs FÍA endurskoðar fjárfestingarstefnu sjóðsins að minnsta kosti árlega og nú hefur stjórnin undirritað nýja fjárfestingarstefnu fyrir árið 2022. Síðustu ár hefur verið lögð áhersla á að auka vægi og áhættudreifingu erlendra eigna. Í nýrri stefnu er þeirri vegferð haldið áfram en helstu breytingar eru þær að vægi erlendra eigna og hlutabréfa er aukið en á móti er dregið úr vægi skuldabréfa.
Fjárfestingarstefna
Breytingar á stefnunni í ár eru gerðar til þess að nýta þau tækifæri sem skapast í lágvaxtaumhverfi og þannig stuðla að hærri langtímaávöxtun. Fjárfestingarstefna sjóðsins er birt á vefsíðu sjóðsins en hana má nálgast hér.
Markmið um hlutfall eignaflokka í sjóðnum breytast eins og hér segir:
- Innlend skuldabréf lækki úr 49% í 46%
- Innlend hlutabréf hækki úr 16% í 17%
- Erlend hlutabréf hækki úr 22% í 23%
- Erlendar sérhæfðar fjárfestingar hækki úr 4% í 7%