28. janúar 2022
Fyrirhuguð breyting á lánareglum
Fyrir liggja breytingar á lánareglum sjóðsins sem taka munu gildi þann 28. febrúar 2022 og stjórn vill upplýsa um fyrir fram.
Hingað til hafa sjóðfélagar greitt fyrir endurfjármagnanir á lánum EFÍA umfram eina fría endurfjármögnun á ári. Frá og með 28. febrúar 2022 munu sjóðfélagar greiða lántökugjald fyrir allar endurfjármagnanir lána.
Ný lán sjóðfélaga hjá sjóðnum verða eftir sem áður án lántökugjalds.