12. febrúar 2022
Sjóðfélagafundur EFÍA
Sjóðfélagafundur EFÍA var haldinn þriðjudaginn 8. febrúar. Á fundinum var farið yfir nýliðið ár, þróun markaða og ávöxtun sjóðsins árið 2021 ásamt umfjöllun um það hvernig árið 2022 fer af stað. Sérstök yfirferð var einnig yfir útgreiðslur lífeyrissparnaðar og þjónustu við sjóðfélaga.
Ánægjulegt var að geta tekið á móti sjóðfélögum á hefðbundnum staðfundi í Hlíðasmára og sköpuðust góðar umræður.