01. júní 2022
Breyting á vöxtum sjóðfélagalána
Stjórn EFÍA hefur ákveðið að hækka óverðtryggða vexti sjóðsins, vaxtakjör verðtryggðra vaxta eru óbreytt.
Vextir á óverðtryggðum lánum sjóðsins sem bera fasta vexti til 3 ára hækka úr 5,2% í 6,3%. Hækkunin tekur gildi 1. júní 2022 og gildir um ný útlán sjóðsins, þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til þriggja ára fastvaxtatímabili lýkur.