26. ágúst 2022
Breyting á vöxtum sjóðfélagalána og hámarksláns til sjóðfélaga
Stjórn EFÍA hefur ákveðið að hækka óverðtryggða vexti sjóðsins og breytilega verðtryggða vexti. Þá hefur stjórn jafnframt tekið ákvörðun um að hækka hámarkslán til sjóðfélaga.
- Vextir á óverðtryggðum lánum sjóðsins sem bera fasta vexti til 3 ára hækka úr 6,3% í 7,0%. Hækkunin tekur gildi 1. september 2022 og gildir um ný útlán sjóðsins, þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til þriggja ára fastvaxtatímabili lýkur.
- Vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum hækka úr 1,5% í 1,8% þann 1. september 2022. Hækkunin tekur gildi 1. október 2022 fyrir þegar veitt lán en tilkynna þarf um breytingar á breytilegum vöxtum með eins mánaðar fyrirvara. Hækkunin gildir um ný og þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir séu endurskoðaðir ársfjórðungslega.
- Hámarkslán til sjóðfélaga hafa verið 45 milljónir króna en verða frá og með deginum í dag 70 milljónir króna.