Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA hefur ákveðið að hækka óverðtryggða vexti sjóðsins og breytilega verðtryggða vexti.

Vextir á óverðtryggðum lánum sjóðsins sem bera fasta vexti til 3 ára hækka úr 7,0% í 7,5%. Hækkunin tekur gildi 28. nóvember 2022 og gildir um ný útlán sjóðsins, þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til þriggja ára fastvaxtatímabili lýkur.

Vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum hækka úr 1,8% í 2,3% þann 28. nóvember 2022. Hækkunin tekur gildi 28. desember 2022 fyrir þegar veitt lán en tilkynna þarf um breytingar á breytilegum vöxtum með eins mánaðar fyrirvara. Hækkunin gildir um ný og þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir séu endurskoðaðir ársfjórðungslega.