Áherslur fjárfestingarstefnu EFÍA 2023
Stjórn Eftirlaunasjóðs FÍA endurskoðar fjárfestingarstefnu sjóðsins að minnsta kosti árlega og í nóvember sl. undirritaði hún nýja fjárfestingarstefnu fyrir árið 2023. Síðustu ár hefur verið lögð áhersla á að auka vægi og áhættudreifingu erlendra eigna. Í nýrri stefnu er þeirri vegferð haldið áfram en helstu breytingar eru þær að vægi erlendra hlutabréfa og erlendra sérhæfðra fjárfestinga er aukið en á móti er dregið úr vægi skuldabréfa, bæði innlendra og erlendra.
Fjárfestingarstefna
Breytingar á stefnunni í ár eru gerðar til þess að halda áfram á vegferð síðustu ára um að auka erlenda tengingu og jafnframt áhættudreifingu erlendra eigna. Þannig er verið að stuðla að hærri langtímaávöxtun. Fjárfestingarstefna sjóðsins er birt á vefsíðu sjóðsins en hana má nálgast hér.
Markmið um hlutfall eignaflokka í sjóðnum breytast eins og hér segir:
- Innlend skuldabréf lækki úr 46% í 44%
- Innlend hlutabréf óbreytt í 17%
- Erlend hlutabréf hækki úr 23% í 24%
- Erlend skuldabréf lækki úr 7% í 5%
- Erlendar sérhæfðar fjárfestingar hækki úr 7% í 10%
