Breyting á vöxtum sjóðfélagalána
Stjórn EFÍA hefur ákveðið að hækka óverðtryggða vexti sjóðsins og breytilega verðtryggða vexti.
Vextir á óverðtryggðum lánum sjóðsins sem bera fasta vexti til 3 ára hækka úr 7,5% í 8,3%. Hækkunin tekur gildi 1. mars 2023 og gildir um ný útlán sjóðsins, þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til þriggja ára fastvaxtatímabili lýkur.
Vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum hækka úr 2,3% í 2,5% þann 1. mars 2023. Hækkunin tekur gildi 1. apríl 2023 fyrir þegar veitt lán en tilkynna þarf um breytingar á breytilegum vöxtum með eins mánaðar fyrirvara. Hækkunin gildir um ný og þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir séu endurskoðaðir ársfjórðungslega.