09. október 2023
Breyting á vöxtum sjóðfélagalána
Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.
Vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum hækkuðu úr 2,7% í 3,2% þann 1. september 2023. Hækkunin tók gildi 1. október fyrir þegar veitt lán en tilkynna þarf um breytingar á breytilegum vöxtum með eins mánaðar fyrirvara.
Hækkunin gildir um ný og þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir séu endurskoðaðir ársfjórðungslega.