Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum hækkuðu úr 3,75% í 4,1% þann 1. júní 2024. Hækkunin tekur gildi 1. júlí fyrir þegar veitt lán en tilkynna þarf um breytingar á breytilegum vöxtum með eins mánaðar fyrirvara.

Hækkunin gildir um ný og þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir séu endurskoðaðir ársfjórðungslega.