Niðurstaða stjórnarkjörs og kosninga um samþykktabreytingar
Kjöri til varastjórnar EFÍA og kosningu um breytingar á samþykktum lauk kl. 13:00 á föstudag.
Kjör til varastjórnar hlutu Arna Óskarsdóttir og Gauti Sigurðsson.
Atkvæði til varamanna drefiðust með eftirfarandi hætti:
Gauti Sigurðsson: 271
Úlfar Henningsson: 237
Arna Óskarsdóttir: 210
Tóku ekki afstöðu: 42
EFÍA ber að tryggja að fylgt sé 29. gr. laga nr. 129/1997, um samsetningu stjórnar. Það felur í sér að tryggja skal að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%. Sama gildir um kynjahlutföll meðal varamanna. Til að uppfylla kröfu laga um hlutfall hvors kyns á meðal varamanna er ljóst að í þau tvö sæti sem verið var að kjósa um núna þurftu að veljast varamenn af hvoru kyni.
Niðurstöður kosninga um samþykktarbreytingar
Tillaga 1 - afnema COVID undanþágu um að sjóðfélagar geti tímabundið greitt í sjóðinn af launum frá vinnuveitanda sem ekki er með kjarasamning við FÍA.
- samþykkt með 68,58% greiddra atkvæða, 25,69% sögðu nei og 5,74% tóku ekki afstöðu.
Tillaga 2 - um að ársfundur samþykki tillögu stjórnar um aðra einstaklinga en stjórnarmenn sem sitja í endurskoðunarnefnd.
- samþykkt með 78,80% greiddra atkvæða, 3,24% sögðu nei og 17,96% tóku ekki afstöðu.
Tillaga 3 - að sjóðurinn hafi heimildtil að greiða sjóðfélaga vegna iðgjalda sem berast eftir að hann hefur sótt um lífeyri.
- samþykkt með 85,04% greiddra atkvæða, 4,74% sögðu nei og 10,22% tóku ekki afstöðu.
Tillaga 4 - áralöng regla um hvernig reikna eigi örorkulífeyri færð í samþykktirnar.
- samþykkt með 80,05% greiddra atkvæða, 3,99% sögðu nei og 15,96% tóku ekki afstöðu.
Tillaga 5 - tillaga um breytingar á makalífeyri.
- hafnað með 52,87% greiddra atkvæða, 44,89% sögðu já og 2,24% tóku ekki afstöðu.
Tillaga 6 - röng tilvísun í samþykktum lagfærð.
- samþykkt með 83,79% greiddra atkvæða, 6,48% sögðu nei og 9,73% tóku ekki afstöðu.
Tillaga 7 - framtíðarréttindi, þ.e. réttindatöflur sjóðsins, aukin um 2% að meðaltali auk þess sem áunnin réttindi eru lækkuð um 6%. Lækkunin er framkvæmd með þeim hætti að um verði að ræða lækkun um 1% á mánuði í 6 mánuði, frá og með 1. janúar 2025.
- samþykkt með 47,88% greiddra atkvæða, 30,67% sögðu nei og 21,45% tóku ekki afstöðu.
Samkvæmt gr. 24.1 í samþykktum EFÍA skoðast breytingar samþykktar ef meirihluti greiddra atkvæða fellur með tillögunni. Tillögurnar eru því allar samþykktar nema tillaga nr. 5.