28. júní 2024
Hámarkslán hjá EFÍA hækkar
Stjórn EFÍA hefur uppfært lánareglur sjóðsins. Hámarkslánveiting hefur verið 70 milljónir kr. en verður nú 80 milljónir kr.
Breytingin tekur þegar gildi.
Til að geta fengið lán hjá EFÍA er skilyrði að sjóðfélagar uppfylli a.m.k. eitt af eftirfarandi skilyrðum:
- Hafa greitt að lágmarki sex iðgjöld til sjóðsins á síðastliðnum 12 mánuðum.
- Hafa greitt samtals 60 iðgjöld til sjóðsins.
- Þiggja lífeyrisgreiðslur úr sjóðnum.
Eins og áður segir er hámarkslán nú 80 milljónir kr. en lánstími er 5 til 40 ár.
Frekari upplýsingar um lán hjá EFÍA má finna hér.