Breyting á vöxtum sjóðfélagalána
Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti og fasta verðtryggða vexti sjóðsins.
Vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum hækkuðu úr 4,1% í 4,5% þann 1. september 2024. Hækkunin tekur gildi 1. október fyrir þegar veitt lán en tilkynna þarf um breytingar á breytilegum vöxtum með eins mánaðar fyrirvara.
Hækkunin gildir um ný og þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir séu endurskoðaðir ársfjórðungslega.
Vextir á verðtryggðum lánum með fasta vexti hækkuðu úr 4,3% í 4,5% þann 1. september.