Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að lækka óverðtryggða vexti og hækka breytilega verðtryggða vexti og fasta verðtryggða vexti sjóðsins.

Vextir á óverðtryggðum föstum lánum lækkuðu úr 9,5% í 8,9% þann 1. desember.

Vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum hækkuðu úr 4,5% í 4,8% þann 1. desember 2024. Hækkunin tekur gildi 1. janúar 2025 fyrir þegar veitt lán en tilkynna þarf um breytingar á breytilegum vöxtum með eins mánaðar fyrirvara.

Hækkunin gildir um ný og þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir séu endurskoðaðir ársfjórðungslega.

Vextir á verðtryggðum lánum með fasta vexti hækkuðu úr 4,5% í 4,8% þann 1. desember.