Vegna dóms Hæstaréttar frá 27. nóvember 2024

Vegna dóms Hæstaréttar frá 27. nóvember 2024

Í lok desember 2021 tilkynnti Fjármálaráðuneytið að lífeyrissjóðir skyldu notast við nýjar töflur um lífslíkur landsmanna. Nýjar forsendur byggja í fyrsta sinn á því að lífaldur mismunandi árganga mun ekki vera hinn sami. Þannig gera hinar nýju forsendurnar ráð fyrir því að þeir sem yngri eru muni lifa lengur en þeir sem eldri eru. Þar sem lífeyrissjóðir greiða ellilífeyri til æviloka þá leiðir hærri lífaldur til þess að lífeyrissjóðir þurfa að greiða lífeyri í lengri tíma en áður var gert ráð fyrir þó mislengi eftir árgöngum. Vegna þessara breyttu forsendna var ljóst að lífeyrissjóðir þurftu að grípa til aðgerða til að tryggja að sjóðurinn gæti staðið við skuldbindingar sínar.

Þegar breytingar voru gerðar hjá EFÍA var horft til réttinda sem sjóðfélagi hafði þegar áunnið sér og þau endurreiknuð á nýjan hátt. Þannig var tryggt að verðmæti heildar áunna réttinda hvers og eins sjóðfélaga breyttust ekki en í öllum tilfellum þurfti að dreifa þeim yfir lengri tíma, þó misjafnt eftir því hvenær sjóðfélagar eru fæddir Áunnin réttindi allra fæðingarárganga voru því reiknuð þannig að heildarskuldbindingar sjóðsins breyttust ekki.

Ef við tökum dæmi byggt á hinum nýju lífslíkutöflum þá mun t.d. einstaklingur fæddur 1960 lifa skemur en einstaklingur sem er fæddur 1990. Þar sem flugmönnum ber að hætta við 65 ára aldur er nokkuð ljóst að réttindi þess sem yngri er þarf að ná yfir lengra tímabil en þess sem eldri er þar sem lífeyri er greiddur til æviloka. Sjóðfélagi sem er fæddur 1990 þarf því dreifa áunnum réttindum sínum yfir lengra tímabil en sá sem er fæddur 1960 miðað við eldri forsendur sem gerðu ráð fyrir að allir árgangar myndu að jafnaði lifa jafnlengi.

Lífeyrissjóður Verzlunarmanna (LIVE), fór sömu leið og EFÍA við innleiðingu á breyttum lífslíkutöflum. Einn sjóðfélaga LIVE taldi að með þessari aðferð hefði verið brotið gegn réttindum sínum og leitt til skerðingar á áunnum réttindum sínum og fór í mál við LIVE. Hinn 27. nóvember sl. lauk því máli með dómi Hæstaréttar.

Hæstiréttur hafnaði málsástæðum sjóðfélaga LIVE og sýknaði lífeyrissjóðinn. Hæstiréttur taldi breytingarnar ekki hafa gengið gegn jafnræði sjóðfélaga eða brotið gegn meðalhófi. Einnig taldi Hæstiréttur að breytingin fæli ekki í sér skerðingu á áunnum en óvirkum lífeyrisréttindum sjóðfélagans.

Dómur Hæstaréttar er fordæmisgefandi fyrir EFÍA og aðra lífeyrissjóði landsins. Ekki er þörf á að grípa til neinna ráðstafana í kjölfar dómsins.