Auglýst eftir framboðum - Fulltrúar sjóðfélaga í stjórn EFÍA
Auglýst er eftir framboðum til stjórnarsetu í EFÍA kjörtímabilið 2025-2027.
Í samræmi við samþykktir sjóðsins er kosið rafrænt til stjórnar, kosning hefst á ársfundi sjóðsins þann 28. maí nk. og stendur í viku.
Samkvæmt grein 4.1 í samþykktum sjóðsins skulu sjóðfélagar nú kjósa tvo aðalmenn og einn varamann til stjórnarsetu í tvö ár. Þeir sem gefa kost á sér þurfa að uppfylla eftirfarandi:
- Vera sjóðfélagar í EFÍA
- Vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv. 31. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og fullnægja að öðru leyti þeim kröfum sem gerðar eru um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. framangreindum lögum, reglum FME og samþykktum sjóðsins
- Vera tilbúnir til að gangast undir hæfismat FME
- Skila inn framboðsgögnum innan tilskilins tímafrests
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn framboð og fylgigögn sem listuð eru upp hér að neðan á netfangið kjorstjorn@efia.is
Frestur til að skila inn framboði er föstudagurinn 2. maí 2025.
Í tilkynningu um framboð eða fylgigögnum skal frambjóðandi a.m.k. tiltaka:
- nafn, kennitölu og heimilisfang
- upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun og reynslu
- yfirlýsingu um að viðkomandi hafi kynnt sér og uppfylli hæfisskilyrði 31. gr. laga nr. 129/1997
- aðrar þær upplýsingar sem frambjóðandi telur að geti nýst við að meta hæfi og hæfni hans til að gegna stjórnarstörfum
- kynningarbréf fyrir sjóðfélaga með helstu upplýsingum um frambjóðandann sem birt verður á kosningavef á heimasíðu sjóðsins ásamt mynd
Þá skal jafnframt fylgja umsókn upplýsingar um hvort frambjóðandi gefi kost á sér í aðalstjórn eða varastjórn (eða bæði).
Í samræmi við 29. gr. laga 129/1997 skal tryggt að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40% meðal aðalmanna og varamanna stjórnarinnar í heild.
Viðtalsþættir vegna mats á hæfi stjórnarmanna í lífeyrissjóðum