02. júní 2025
Breyting á vöxtum sjóðfélagalána
Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að lækka fasta óverðtryggða vexti og fasta verðtryggða vexti sjóðsins og tekur breytingin í gildi í dag, 2. júní.
Vextir á föstum óverðtryggðum lánum lækka úr 8,55% í 8,45%.
Vextir á föstum verðtryggðum lánum lækka úr 4,80% í 4,50%.
Lækkunin gildir um ný útlán sjóðsins, þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til fastvaxtatímabili þess lýkur.