26. júní 2025
Hámarkslán hjá EFÍA hækkar
Stjórn EFÍA hefur uppfært lánareglur sjóðsins. Hámarkslánveiting hefur verið 80 milljónir kr. en verður nú 90 milljónir kr.
Breytingin tekur þegar gildi.
EFÍA býður upp á þrjú lánsform eða blöndu af þeim:
- Verðtryggð lán með vöxtum sem eru breytilegir, 4,80%.
- Verðtryggð lán með föstum vöxtum til fimm ára í senn, 4,50%.
- Óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára í senn, 8,45%.
Eins og áður segir er hámarkslán nú 90 milljónir kr. og lánstími er 5 til 40 ár.
Frekari upplýsingar um lán hjá EFÍA má finna hér.