EFÍA gerir hlé á veitingu verðtryggðra sjóðfélagalána með breytilegum vöxtum

EFÍA gerir hlé á veitingu verðtryggðra sjóðfélagalána með breytilegum vöxtum

Vegna dóms Hæstaréttar nr. 55/2024 mun EFÍA gera hlé á veitingu verðtryggðra lána með breytilegum vöxtum. Umsóknir um lán sem þegar eru í vinnslu hjá sjóðnum verða afgreidd. Verið er að meta áhrif dómsins en ljóst er að sú vinna mun taka einhvern tíma.

Nánari upplýsingar verða birtar á vef sjóðsins um leið og þær liggja fyrir. Sjóðfélagar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.