Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að lækka fasta óverðtryggða vexti og tekur breytingin í gildi í dag, 27.nóvember.

Vextir á föstum óverðtryggðum lánum lækka úr 8,45% í 8,25%.

Lækkunin gildir um ný útlán sjóðsins, þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til fastvaxtatímabili þess lýkur.