Yfirlit hafa verið birt
Yfirlit um iðgjaldagreiðslur á greiðslutímabilinu 1. ágúst 2024 til 16. febrúar 2026 hafa verið birt á Mínum síðum sjóðsins. Á yfirlitinu má einnig sjá stöðuna miðað við 16. febrúar 2026.
Við hvetjum sjóðfélaga til að fara vel yfir yfirlitin sín og ef iðgjöld vantar eða eru ekki í samræmi við launaseðla, að hafa tafarlaust samband við launagreiðanda eða lífeyrisþjónustuna í síma 444 7000, lifeyristhjonusta@arionbanki.is.
Verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissparnað geta dýrmæt lífeyrisréttindi glatast.
Yfirlit þeirra sem hafa óskað eftir að fá þau send í pósti munu berast á næstu dögum.
Við vekjum athygli sjóðfélaga á að þeir geta fylgst með lífeyrissparnaði sínum í Arion appinu. Þar er hægt að sækja hreyfingayfirlit til að fylgjast vel með hvort að iðgjöld hafi borist og séu rétt.