Kosningar EFÍA 2026

Í kjölfar ársfundar EFÍA 2026 kjósa sjóðfélagar með rafrænum hætti um tillögur stjórnar til samþykktabreytinga.

Í kosningu um tillögu stjórnar til samþykktabreytinga eru fjórar tillögur sem liggja fyrir. Nánar er gerð grein fyrir þeim í skjali sem fylgir hér og einnig í glærum ársfundar um samþykktabreytingar.

Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér tillögurnar vel sem settar eru fram hér fyrir neðan, áður en þeir skrá sig inn í kjörklefann.

Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum EFÍA
 

Smelltu hér til að kjósa 


 

Upplýsingar um framkvæmd kosninga

Kosningar verða með rafrænum hætti, kosningavef verður stillt upp á heimasíðu sjóðsins og auðkenna sjóðfélagar sig inn í kjörklefann með rafrænum skilríkjum eða íslykli.

  • Opnað var fyrir kosningu kl. 13:00 fimmtudaginn 28. maí 2026
  • Kosning stendur til 13:00 4. júní 2026
  • Tilkynnt verður um niðurstöðu kosninga á heimasíðu sjóðsins

Á kjörseðli eru fjórar tillögur stjórnar til samþykktabreytinga.