Vel sóttur fræðslufundur 16. janúar
Á fimmta tug sjóðfélaga sótti fræðslufund EFÍA sem haldinn var að Hlíðarsmára 8 þann 16. janúar sl. Á fundinum fór Þ. Haukur Reynisson, formaður stjórnar, yfir breytingar á réttindum sjóðfélaga og kynnti nýjan framkvæmdastjóra sjóðsins, Jón L. Árnason, sem tók við um áramótin af Haraldi Yngva Péturssyni. Þá fór Marinó Örn Tryggvason, forstöðumaður í eignastýringu Arion banka, yfir ávöxtun og eignasamsetningu sjóðsins á árinu 2012 og boðið var upp á umræður um málefni sjóðsins.
Kynningarfundur fyrir sjóðfélaga 16. janúar 2013