Við elskum stemninguna á EM

Evrópumeistaramótið í handknattleik fer fram í Danmörku, Svíþjóð og Noregi dagana 15. janúar til 1. febrúar.

Við elskum stemninguna á EM, þegar fjölskyldur, vinir og vinnufélagar hnappast saman fyrir framan sjónvarpsskjáinn til að styðja við bakið á strákunum okkar í æsispennandi rimmum gegn fremstu leikmönnum íþróttarinnar.

Að vanda leggjum við lóð á vogarskálarnar og styðjum rækilega við bakið á strákunum okkar á EM.

Leikir framundan

Allir leikir íslenska liðsins í milliriðlinum verða sýndir í beinni útsendingu á RÚV.

 23. janúar 2026  Kl. 14:30  Ísland - Króatía
 25. janúar 2026  Kl. 17:00  Ísland - Svíþjóð
 27. janúar 2026  Kl. 14:30  Ísland - Sviss
 28. janúar 2026  Kl. 14:30  Ísland - Slóvenía

Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár

 
Nú er EM 2026 að hefjast og spenningurinn auðvitað mikill. Við hjá Arion banka höfum verið einn helsti bakhjarl karlalandsliðsins í handbolta frá árinu 2004, eða í heil tuttugu og tvö ár. Það hefur verið þvílíkt ævintýri og mikið vatn runnið til sjávar á þessum tíma. Til að mynda komumst við í fyrsta skipti á verðlaunapall á stórmóti þegar Ísland lenti í öðru sæti á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. Árið 2010 unnum við svo fyrsta úrslitaleikinn okkar á EM þegar við bárum sigurorð af Póllandi í viðureigninni um bronsið. Þarna náðust nýir áfangar í sögu íslenska handboltans sem glöddu þjóðina og sköpuðu miklar væntingar næstu árin.

Ýmsar stjörnur hafa gert garðinn frægan á þessum tuttugu og tveimur árum. Í nýrri markaðsherferð Arion banka, sem hefur það meðal annars að markmiði að efla og viðhalda áhuga þjóðarinnar á handboltanum, ákváðum við að kalla til nokkra þjóðþekkta fyrrum landsliðsmenn og leiða þá saman við núverandi fulltrúa Íslands á vellinum. Útkomuna má sjá á þessum stórskemmtilegu ljósmyndum og í myndböndum þar sem hlýja, samheldni og væntumþykja leikmannanna gagnvart hver öðrum skín úr hverju auga. Þessir strákar hafa gengið í gegnum margt saman, bæði súrt og sætt.

Fyrir litla þjóð eins og Ísland fylgir því einhver alveg sérstakur galdur að ná árangri í íþróttum á alþjóðasviðinu. Fáar þjóðir standa jafn þétt við bakið á landsliðinu sínu og við gerum. Sverre Andreas Jakobsson, gamli varnarjaxlinn og núverandi starfsmaður Arion, sagði að það hefði verið „heiður í hvert skipti að klæðast landsliðstreyjunni“. Okkur er sönn ánægja að hafa staðið þétt við bakið á kröftugum íþróttamönnum, sem hugsa með slíkum hætti, með áratugalöngum stuðningi okkar.

Svo elskum við líka bara stemninguna á stórmótum í handbolta, þegar ættingjar og vinir koma saman fyrir framan sjónvarpsskjáinn til að styðja við bakið á strákunum okkar í æsispennandi rimmum gegn fremstu leikmönnum íþróttarinnar. Handbolti er íþrótt sem þjappar okkur saman og brúar um leið bilið á milli kynslóðanna.

Við hjá Arion banka hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs við íslenska landsliðið.

Áfram Ísland!

 

Tengdar greinar