Lækkun á óverðtryggðum vöxtum íbúðalána
Í kjölfar lækkunar Seðlabanka Íslands á stýrivöxtum, sem kynnt var 17. maí, hefur verið ákveðið að lækka óverðtryggða vexti íbúðalána Arion banka um 0,25%.
- Breytilegir óverðtryggðir vextir voru 6,35% og lækka í 6,10%
- Óverðtryggðir vextir fastir til þriggja ára voru 6,4% og lækka í 6,15%
- Óverðtryggðir vextir fastir til fimm ára voru 6,45% og lækka í 6,20%
Vaxtalækkunin hefur áhrif á öll ný íbúðalán með óverðtryggðum vöxtum sem veitt eru eftir föstudaginn 20. maí og einnig eldri íbúðalán sem bera breytilega óverðtryggða vexti. Athygli er vakin á að þessi breyting hefur hvorki áhrif á verðtryggð lán né eldri lán með föstum óverðtryggðum vöxtum.
Nánari upplýsingar um íbúðalán Arion banka má finna á sérstakri íbúðalánasíðu en frekari upplýsingar um vexti eru í vaxtatöflu og í yfirliti vaxtaþróunar.