Að flytja að heiman

Að flytja að heiman eru stór skref í lífi hverrar manneskju. Að fara úr vernduðu umhverfi foreldrahúsa í ábyrgðina sem fylgir því að reka heimili vex mörgum í augum þrátt fyrir að flestir séu spenntir fyrir því.
Tekjur og kostnaður
Það fyrsta sem þú þarft að huga að er hversu miklar ráðstöfunartekjur þú hefur. Til þess að átta þig á þinni stöðu skaltu bera saman mánaðarlegan kostnað þinn og bera saman við tekjur þínar. Hvort heldur sem þú stefnir á að leigja eða kaupa fasteign er mikilvægt að gera fjárhagsáætlun og standa við hana. Gott er að hafa eftirfarandi sem viðmið:
- 50% fastur kostnaður, húsnæði, afborganir, matur og samgöngur
- 30% breytilegur kostnaður, skemmtun, föt og skór, veitingahús, heilsurækt, áhugamál
- 20% sparnaður, fjárfestingar eða sparnaðarreikningur
Það er að sjálfsögðu alltaf hægt að aðlaga áætlanir, skuldbindingar og plön við þína stöðu hverju sinni en það sem er mikilvægast að gera er að hafa yfirsýn yfir fjármálin, kostnað og eyðslu.