Arion banki í fyrsta sæti yfir fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri

Arion banki í fyrsta sæti yfir fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri

Arion banki í fyrsta sæti yfir fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri - mynd

Viðskiptablaðið og Keldan birta árlega lista yfir fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri og þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði til að komast á listann. Við erum stolt af því að í ár er Arion banki í fyrsta sæti á lista yfir stór fyrirtæki hér á landi.

Dótturfélög Arion banka, Vörður og Stefnir, eru einnig á lista yfir fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2022.

Um 2,8% íslenskra fyrirtækja komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar í ár og þurftu þau öll að uppfylla skilyrði um afkomu, eiginfjárhlutfall, tekjur og eignir.