Nýtt og glæsilegt húsnæði Arion í Vík í Mýrdal

Nýtt og glæsilegt húsnæði Arion í Vík í Mýrdal

Nýtt og glæsilegt húsnæði Arion í Vík í Mýrdal - mynd

Glatt var á hjalla föstudaginn 22. mars þegar við fluttum útibú okkar á Vík í Mýrdal í nýtt og glæsilegt húsnæði að Sléttuvegi 2.

Boðið var upp á kaffi og kleinur í tilefni opnunarinnar og lögðu fjölmargir íbúar í Vík, viðskiptavinir bankans og núverandi jafnt sem fyrrum starfsfólk, leið sína í útibúið af því tilefni.

Við munum bjóða upp á sömu þjónustu og áður og opnunartími útibúsins verður einnig sá sami eða alla virka daga frá kl. 12:00-15:30.