Uppfærð persónuverndaryfirlýsing

Bankanum er umhugað um persónuvernd og réttindi viðskiptavina og vinnur upplýsingar með gagnsæjum hætti. Í því skyni hefur persónuverndaryfirlýsing bankans verið uppfærð. Breytingarnar ættu ekki að hafa áhrif á upplifun viðskiptavina af þjónustu bankans en þeir eru þó hvattir til að kynna sér yfirlýsinguna. Þar kemur meðal annars fram hvaða persónuupplýsingar bankinn vinnur og hvers vegna.
Frekari upplýsingar um persónuvernd og persónuverndaryfirlýsinguna er að finna hér.
Engra aðgerða er þörf af hálfu viðskiptavina en spurningar eða athugasemdir skal senda á persónuverndarfulltrúa bankans á netfangið personuvernd@arionbanki.is.