Breyting á dagslokum bankadaga – tekur gildi frá 8. september 2025

Breyting á dagslokum bankadaga – tekur gildi frá 8. september 2025

Breyting á dagslokum bankadaga – tekur gildi frá 8. september 2025 - mynd

Reiknistofa bankanna hefur ákveðið að frá og með 8. september næstkomandi verða dagslok í innlánakerfum færð frá kl. 21:00 til miðnættis, kl. 24:00.

Markmiðið með breytingunni er að koma enn betur til móts við nútíma viðskiptahætti með því að hafa dagslok bankakerfa í samræmi við almanaksdaga og styðja þannig við sveigjanlegri opnunartíma og samfellda þjónustu.

Bankadagar verða áfram virkir dagar og færslur sem berast á frídögum verða áfram bókaðar á næsta virka dag.

Í tilkynningu frá Reiknistofu bankanna segir að breytingin muni nýtast almenningi, fyrirtækjum og stofnunum sem treysta á hraða og áreiðanlega afgreiðslu bankaviðskipta á kvöldin.

Við hvetjum viðskiptavini og samstarfsaðila til að kynna sér áhrif breytingarinnar á sín viðskipti og hafa samband við okkur ef frekari upplýsinga er þörf í síma 444 7000, í gegnum netspjallið á arionbanki.is eða með því að senda okkur póst á netfangið arionbanki@arionbanki.is.