Dregið hefur verið út í sumarlaunaleik Arion banka

Dregið hefur verið út í sumarlaunaleik Arion banka

Karin Inga Benjamínsdóttir tók við peningagjöf og blómum í útibúi Arion banka við Smáratorg. - mynd
Karin Inga Benjamínsdóttir tók við peningagjöf og blómum í útibúi Arion banka við Smáratorg.
Dregið hefur verið út í sumarlaunaleik Arion banka - mynd

Nú hefur verið dregið út í sumarlaunaleik Arion banka en unglingar sem lögðu launin sín inn á reikning hjá bankanum í sumar voru sjálfkrafa með í leiknum.

Hundrað heppnir unglingar voru dregnir út og fengu 10.000 krónur hver og hefur fjárhæðin verið lögð inn á reikning þeirra. Karin Inga Benjamínsdóttir fékk stóra vinninginn í ár, 100.000 króna peningagjöf frá bankanum, en hún var ein af þeim sem setti inn mynd úr sumarvinnunni á Instagram og merkti #arionsumarlaun.

Við óskum vinningshöfum innilega til hamingju.