Afkoma Arion banka á fyrstu níu mánuðum ársins 2016
Hagnaður Arion banka á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 nam 17,3 milljörðum króna samanborið við 25,4 milljarða króna á sama tímabili 2015. Arðsemi eigin fjár var 11,2% samanborið við 19,8% fyrir sama tímabil árið 2015. Reiknaður hagnaður af reglulegri starfsemi nam 5,7 milljörðum króna samanborið við 11,5 milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins 2015. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi nam 3,7% samanborið við 9,5% á fyrstu níu mánuðum ársins 2015.
Heildareignir námu 1.038,5 milljörðum króna í lok september samanborið við 1.011,0 milljarða króna í árslok 2015 og eigið fé hluthafa bankans nam 206,9 milljörðum króna í lok september, samanborið við 192,8 milljarða króna í árslok 2015. Efnahagur bankans er sterkur og lögð hefur verið áhersla á trygga lausafjárstöðu í aðdraganda afnáms fjármagnshafta.
Eiginfjárhlutfall bankans í lok september var 26,1% en var 24,2% í árslok 2015. Hlutfall eiginfjárþáttar A hækkaði og nam 25,5% samanborið við 23,4% í árslok 2015.
Helstu rekstrar- og kennitölur bankans eru eftirfarandi:
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka
„Afkoman á fyrstu níu mánuðum ársins er viðunandi. Grunnrekstur bankans hefur verið aðeins undir væntingum enda hafa ytri aðstæður sumpart verið óhagstæðar. Þróun á hlutabréfamarkaði á tímabilinu hefur neikvæð áhrif, en bankinn er enn með stöður í skráðum félögum. Grunnrekstur bankans er engu að síður traustur og eiginfjárstaða bankans heldur áfram að styrkjast. Alþjóðlega lánshæfismats fyrirtækið Standard & Poor´s horfði til sterkrar eiginfjárstöðu bankans, bætts aðgengis að erlendum lánsfjármörkuðum sem og sterkrar stöðu íslensks efnahagslífs þegar fyrirtækið hækkaði nýlega lánshæfismat Arion banka í BBB/A-2 með jákvæðum horfum. Vaxtaálag á erlendum útgáfum bankans á eftirmarkaði hefur lækkað mikið sem ber vott um þá eftirspurn sem er til staðar á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum eftir skuldabréfum bankans.
Í lok september gengu kaup Arion banka á tryggingafélaginu Verði í gegn og bætast þar með skaðatryggingar í vöruframboð bankans, en líftryggingar hafa verið hluti af vöruframboðinu um árabil. Vörður hefur þar með bæst í hóp dótturfélaga Arion banka og mun starfa náið með bankanum þegar kemur að sölu trygginga. Viðskiptavinir beggja munu njóta góðs af.“
Fundur með markaðsaðilum
Arion banki mun halda símafund á ensku fyrir markaðsaðila, fimmtudaginn 17. nóvember, klukkan 13:00. Á fundinum mun Stefán Pétursson, fjármálastjóri Arion banka, fara yfir helstu atriði í uppgjöri bankans. Áhugasamir geta sent tölvupóst á ir@arionbanki.is og fá í kjölfarið sendar nánari upplýsingar varðandi þátttöku á símafundinum.
Afkomutilkynning Arion banka 9M 2016
Ársreikningur samstæðu Arion banka 30. september 2016
Afkomukynning Arion banka 9M 2016
Yfirferð á afkomu Arion banka á þriðja ársfjorðungi 2016
Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, fer yfir afkomu Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2016.