Opnað hefur verið fyrir viðskipti skuldabréfasjóða og blandaðra sjóða Stefnis
Í kjölfar ákvörðunar um frestun viðskipta með hlutdeildarskírteini skuldabréfasjóða og blandaðra sjóða Stefnis, tilkynnist hér með að Stefnir hf. hefur tekið þá ákvörðun að opna aftur fyrir viðskipti með hlutdeildarskírteini sjóða sem innihalda skuldabréf útgefin af Íbúðalánasjóði.
Þeir sjóðir sem opnunin nær til:
Stefnir – Ríksiverðbréfasjóður stuttur
Stefnir – Ríkisskuldabréf verðtryggð
Stefnir – Ríkisverðbréfasjóður millilangur
Stefnir – Ríkisverðbréfasjóður langur
Stefnir – Skuldabréf stutt
Stefnir – Eignaval A
Stefnir – Eignaval B
Stefnir – Eignaval C
Stefnir – Samval
Stefnir – Eignastýringarsjóður
Stefnir – Kjarabréf