Nýjungar í Arion fríðindum

Nýjungar í Arion fríðindum

Nýjungar í Arion fríðindum - mynd

Arion fríðindi er nýtt fríðindakerfi Arion og er markmiðið að umbuna viðskiptavinum okkar sem nýta sér fjölbreytta þjónustu Arion samstæðunnar. Fríðindakerfið skiptist í mismunandi stig þar sem viðskiptavinir færast ofar í kerfið eftir því sem fleiri þjónustuþættir eru nýttir og njóta þar með betri kjara og aukinna fríðinda. Hér getur þú skoðað þau fríðindi sem í boði eru ásamt þeim skilyrðum sem þarf að uppfylla á ólíkum stigum kerfisins.

Nú kynnum við til leiks viðbætur við Arion fríðindi sem miða að því að bæta enn frekar þjónustu og upplifun viðskiptavina okkar.

Viðbótarlífeyrissparnaður Frjálsa verður hluti af Arion fríðindum

Frá og með 6. maí 2025 er viðbótarlífeyrissparnaður hjá Frjálsa hluti af öllum stigum í Arion fríðindum. Að minnsta kosti ein innborgun þarf að hafa borist á síðustu fjórum mánuðum til Frjálsa. Einnig mun sparnaðurinn telja með í fjárhagsstöðu viðskiptavina við mat á fríðindastigi.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur um árabil falið Arion banka að sjá um rekstur og eignastýringu sjóðsins. Er því sérstaklega ánægjulegt að viðbótarlífeyrissparnaður sem viðskiptavinir Arion eiga hjá Frjálsa verði nú hluti af fríðindakerfi Arion.

Bílalán bætast við

Nú bætast bílálán einnig við Arion fríðindi og verða þannig hluti af kerfinu rétt eins og íbúðalán.

Nýr sérkjarahópur – 67 ára og eldri

Við höfum sett á laggirnar sérstakan fríðindahóp fyrir viðskiptavini okkar sem eru 67 ára og eldri. Meðlimir hópsins njóta til að mynda eftirfarandi fríðinda:

  • Betri vextir á Vöxtur 50+, óbundnum sparnaðarreikningi
  • Engin þjónustugjöld í þjónustuveri og útibúum
  • Forgangur að þjónustu þegar hringt er í þjónustuverið

Áttu eftir að skrá þig til leiks í Arion fríðindi?

Það tekur ekki nema 30 sekúndur! Þú einfaldlega opnar Arion appið og fylgir örfáum einföldum skrefum. Þetta er svona einfalt. Sjá nánar hér.

 

Fleiri greinar