Vinningshafar í sumarleikjum Arion 2025

Sumarlaunaleikur Arion hefur fest sig í sessi sem árlegur viðburður hjá bankanum og felur í sér alls kyns skemmtilegheit.
Í ár hvöttum við unglinga í sumarvinnu til að taka upp stutt og sniðug myndbönd undir myllumerkinu #ArionSport. Viðbrögðin létu ekki á sér standa en um hundrað myndbönd voru merkt með þeim hætti á samfélagsmiðlum.
Allir þeir unglingar, sem lögðu laun sín inn á reikning hjá Arion í sumar, fóru svo sjálfkrafa í pott og áttu möguleika á að hljóta væna peningagjöf frá bankanum.
Sigurvegarar í Sumarlaunaleik
Að þessu sinni fengu hinir heppnu 100.000 kr. lagðar inn á reikning hjá sér.
Vinningshafarnir voru þau Júlía Bríet Smith, Trausti Þór Þorgilsson, Alexandra Ýr Jónsdóttir og Guðmundur Ágúst Héðinsson.
Sumarleikur Lífeyrisauka
Ungmenni á aldrinum 16-25 ára sem stofnuðu viðbótarlífeyrissparnað hjá Lífeyrisauka í sumar fóru svo einnig í pott.
Það var María Dís Guðmundsdóttir sem hreppti þann vinning og hlaut hún 150.000 kr. gjafakort frá bankanum.
Við óskum öllum vinningshöfum hjartanlega til hamingju. Enn fremur viljum þakka öllum sem tóku þátt í leiknum í sumar og hrósa krökkunum fyrir frábærar viðtökur og mikla hugmyndaauðgi í myndbandagerðinni á samfélagsmiðlum.

Júlía Bríet Smith ásamt Önnu Beekman frá Arion banka.

Trausti Þór Þorgilsson

Alexandra Ýr Jónsdóttir

Guðmundur Ágúst Héðinsson ásamt Önnu Beekman frá Arion banka.

María Dís Guðmundsdóttir ásamt Önnu Beekman frá Arion banka.