Hvernig stofna ég nýtt fyrirtæki?

Það er einfaldara en margur heldur að stofna nýtt félag utan um atvinnurekstur. Stærsta áskorunin er auðvitað að fá hugmynd sem vekur athygli og hefur sterkan rekstrargrundvöll.
Ert þú með góða hugmynd?
Hér á eftir fara helstu skrefin sem taka þarf við stofnun nýs félags.
Hver getur stofnað fyrirtæki?
Stutta svarið er að hver sem er getur stofnað fyrirtæki, að uppfylltum nokkrum einföldum skilyrðum.
Þú þarft að hafa náð 18 ára aldri og vera lögráða. Þá máttu hvorki hafa farið fram á né vera í greiðslustöðvun og loks má bú þitt ekki vera undir gjaldþrotaskiptum.
Ef þú uppfyllir þessi skilyrði, og ert með hugmynd að fyrirtæki, er þér ekkert að vanbúnaði.
Rekstrargrundvöllur fyrirtækisins þíns og áætlanagerð
Næsta skref væri þá að kanna rekstrargrundvöll fyrirtækisins. Þetta er gert með því að a) skoða markaðinn og b) gera kostnaðaráætlun.
Er eftirspurn eftir fyrirtækinu þínu á markaðnum? Ertu að leysa eitthvert vandamál með nýrri vöru eða þjónustu? Hefur annað fólk áhuga á verkefninu?
Í rekstraráætlun ferðu svo yfir vöruframboð og/eða þjónustu fyrirtækisins, söluverð og kostnað og teiknar upp raunhæf markmið.
Rekstrarform og umgjörð
Ef markaðsrannsókn og kostnaðaráætlun hafa sannfært þig um að grundvöllur sé fyrir rekstrinum, þá er næsta skref að velja rekstrarform sem hentar starfseminni.
Algengasta rekstrarformið á Íslandi eru einkahlutafélög, eða ehf.
Við mælum með því að ráðfæra sig við lögmann, löggiltan endurskoðanda eða bókara áður en rekstrarform er valið, enda er ábyrgð eiganda og skattlagning ólík eftir rekstrarformi.
Lesa má um ólík rekstrarform hér. Ef þú vilt lesa um rekstur á eigin kennitölu er hægt að gera það hér.
Í þessari stuttu grein einbeitum við okkur að einkahlutafélögum.
Stofnun kennitölu einkahlutafélags
Þegar þú hefur valið rekstrarform er næsta skref að stofna félagið sjálft.
Ferlið við stofnun einkahlutafélaga er afar einfalt og má afgreiða það rafrænt inni á þjónustuvef Skattsins.
Hér má horfa á kennslumyndband frá Skattinum sem leiðir þig í gegnum ferlið.
Eigendur félagsins geta verið einn eða fleiri. Við skráningu þarf að tiltaka hverjir eigendurnir eru og hvernig hlutafé félagsins skiptist á milli þeirra.
Við skráninguna þarf einnig að skila inn eftirfarandi skjölum:
- Tilkynningu um stofnun einkahlutafélags
- Stofnskrá ef einn eigandi
- Stofnsamningur, ef fleiri en einn eigandi:
- Samþykktir
- Stofngerð, ef einn eigandi
- Stofnfundargerð, ef fleiri en einn eigandi
Mikilvægt er að kynna sér vel þær lagalegu skyldur sem fylgja því að reka fyrirtæki. Einkahlutafélögum ber m.a. að færa bókhald félagsins, standa skil á rekstrartengdum sköttum og gjöldum og skila inn skattframtali og ársreikningum.
Kostnaður við skráningu
Þegar einkahlutafélag er stofnað er gerð krafa um að minnsta kosti 500.000 kr. í hlutafé félagsins. Sú fjárhæð skal vera til staðar þegar félagið er stofnað. Eigendur fyrirtækisins ráða sjálfir hvernig hlutaféð nýtist í rekstrinum.
Auk þess þarf að greiða kostnað við skráninguna sjálfa. Hér má kynna sér þau gjöld sem fylgja skráningunni.
Frumfjármögnun félagsins og fyrstu skref í starfsemi
Tryggja þarf félaginu rekstrargrundvöll á fyrstu stigum starfseminnar. Í mörgum tilvikum getur það tekið tíma að fá tekjuflæði inn í félagið, á meðan verið er að koma starfseminni á koppinn. Gera þarf ráð fyrir slíku í kostnaðaráætlun.
Að stofna fyrirtæki er ævintýri – gangi þér vel
Að lokum langar okkur að óska þér gæfu og gengis í rekstrinum. Margir ganga um með þann draum í maganum að stofna eigið fyrirtæki – og það er auðvitað alltaf mikið ævintýri að hrinda slíkum draumi í framkvæmd.
Við viljum styðja við bakið á þér á þessari vegferð, enda er einn af hornsteinum góðs reksturs farsælt samband við viðskiptabanka fyrirtækisins.
Fyrirtækjaráðgjafar í Arion banka eru alltaf til taks að svara spurningum eða veita þér ráðleggingar um fjármál, hvort sem það varðar lausafjárstýringu, fjármögnun eða fjárstreymi. Hér má með einföldum stofna fyrirtækjareikning hjá okkur og hefja ánægjulegt samstarf til framtíðar.
Á vefnum okkar má enn fremur fræðast meira um ýmislegt sem tengist fyrirtækjarekstri, svo sem fjármögnun fyrirtækja, stýringu lausafjár, ársreikninga, lánshæfi fyrirtækja og fleira gagnlegt.
Gangi þér vel!