Vegna viðskiptavina okkar í Grindavík
Mynd: grindavik.isEins og fram hefur komið í fréttum hafa Arion, Íslandsbanki og Landsbankinn, í samvinnu við SFF, gert samkomulag um að fella niður vexti og verðbætur af íbúðalánum vegna húsnæðis í Grindvík í þrjá mánuði.
Með þessu viljum við koma til móts við viðskiptavini okkar í Grindavík sem standa frammi fyrir mikilli óvissu. Til viðbótar hefur Arion banki þegar boðið Grindvíkingum að frysta íbúðalán sín í 3 mánuði.
Unnið er að nánari útfærslu á framkvæmdinni og munum setja okkur í samband við alla okkar viðskiptavini frá Grindavík og fara yfir þetta með þeim.