19. júní 2020
Árangursmiðað viðskiptasamband Frjálsa lífeyrissjóðsins og Arion banka

Í ljósi gagnrýni sem fram hefur komið í fjölmiðlum síðustu daga um starfsemi Arion banka vegna eignastýringar og reksturs Frjálsa lífeyrissjóðsins, varðandi ávöxtun, kostnað og veltu, er vert að taka eftirfarandi fram:
- Ávöxtun og kostnaður – ávöxtun Frjálsa stenst allan samanburð, bæði varðandi skyldusparnað og viðbótarsparnað, og rekstrarkostnaður sjóðsins fer markvisst lækkandi.
- Óhæði – allir stjórnarmenn Frjálsa eru kosnir af sjóðfélögum, enginn stjórnarmaður er á vegum Arion banka, framkvæmdastjóri er starfsmaður sjóðsins og ytri og innri endurskoðandi á vegum þriðja aðila.
- Gegnsæi – mikið er lagt upp úr góðri og skýrri upplýsingagjöf til sjóðfélaga, m.a. er viðskiptasamningur Frjálsa við Arion banka aðgengilegur öllum, hann má sjá hér.
Samstarf Arion banka og Frjálsa er byggt á heilbrigðu viðskiptasambandi tveggja sjálfstæðra aðila. Frjálsi hefur birt ítarlegar upplýsingar varðandi starfsemina sem má finna hér.