Þjónusta um páskana

Útibú okkar og þjónustuver verða lokuð yfir páskana, frá 17. apríl til 21. apríl. Við opnum aftur á hefðbundnum tíma þann 22. apríl.
Við vekjum athygli á að netspjallið okkar á arion.is er alltaf opið. Einnig er hægt að sinna öllum helstu bankaviðskiptum í Arion appinu og netbankanum. Þar er hægt að greiða reikninga, millifæra, sækja um eða breyta kreditkorta- og yfirdráttarheimild, stofna greiðsludreifingu, sækja um Núlán og margt fleira.
Hægt er að hafa samband við neyðarvakt vegna net- og kortasvika með því að hringja í 444 7000 og velja 5 eða í gegnum netfangið netsvik@arionbanki.is.